ÍslandsApótek
Laugavegur 46, 101 Reykjavík, Iceland, Reykjavík
ÍslandsApótek er sjálfstætt starfandi apótek í miðbæ Reykjavíkur stofnað 2017 af Dr. Skúla Skúlasyni lyfjafræðingi. Apótekið er í glæsilegu bárujárnshúsi sem var endurgert árið 2011 og endurspeglar stíll apóteksins anda húsins vel.
ÍslandsApótek býður persónulega þjónustu og hagstætt verð á lyfjum, heilsutengdri vöru og snyrtivörum. Íslenskar náttúru- og snyrtivörur skipa góðan sess ásamt öðrum náttúrulegum vörum.
