Brauð & Co
Frakkastígur 16, Reykjavík
Brauð og co er lífrænt súrdeigsbakarí sem leggur áherslu á hágæða hráefni og íslenskt sé þess kostur.
Fegurðin felst í heiðarleikanum; allt fer fram fyrir opnum dyrum og gestir og gangandi geta fylgst með ferlinu, spurt bakarana sjálfa út í það sem fram fer og forvitnast um hráefni og uppruna þeirra.
Þó að innihaldið sé blanda af fjölmörgum tegundum korna; framandi og þekktum er einfaldleikinn allsráðandi.
HÉR ER BAKARI SEM GERIR BRAUÐ OG ÞÚ BORÐAR ÞAÐ, MEÐ SMJÖRI!
