Kjarvalsstaðir - Listasafn Reykjavíkur
Flókagata 24, Reykjavik
Kjarvalsstaðir voru teknir í notkun árið 1973 og er fyrsta byggingin hér á landi sem var sérstaklega hönnuð fyrir myndlistarsýningar.
Í safninu eru reglulega sýningar á verkum Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972 ) enda skipar hann sérstakan sess í íslenskri menningar- og listasögu sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar.
Þar eru jafnframt sýningar á málverkum og skúlptúrum eftir nafnkunna innlenda og erlenda meistara nútímalistar.
Gluggar hússins ná frá gólfi og upp í loft og fyrir utan er Klambratún sem er eitt fárra útivistarsvæða í Reykjavík sem var hannað og skipulagt sem hluti af listrænni menningu borgarinnar.
Upplagt er að njóta útsýnisins um leið og ljúffengra veitinga á kaffihúsi safnsins. Kaffihúsið er opið frá klukkan 10:30-16:30 alla daga vikunnar. Njótum samveru í skapandi umhverfi á Kjarvalsstöðum.
