Harpa - Expó Skálinn
Austurbakki 2, Reykjavik
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús og Sagafilm hafa farið í samstarf um að bjóða gestum að heimsækja Expó skálann í Hörpu. Expó skálinn var fyrst settur upp á heimssýningunni í Sjanghæ árið 2010. Skálinn var endurreistur sem landkynning Íslands á bókamessunni í Frankfurt 2011 auk þess sem hann var settur upp í Hörpu 2012 og í Brimhúsinu 2013.
Í skálanum er sýnd 15 mínútna íslensk kvikmynd framleidd af Sagafilm, þar sem íslenskri náttúru er varpað á fjórar hliðar og loft skálans og myndar þannig tening utan um gesti. Yfir 3 milljónir manna hafa séð kvikmyndina, en markmið hennar er að skapa einfalda og áhrifaríka undraveröld sem fær gesti til að nema staðar, draga djúpt að sér andann og upplifa Ísland í návígi.
