Árbæjarsafn
Kistuhylur 4, Reykjavík
Árbæjarsafn er útisafn sem var stofnað árið 1957 en auk Árbæjar eru þar yfir tuttugu hús, sem mynda torg, þorp og sveit.
Í Árbæjarsafni er leitast við að gefa hugmynd um byggingalist og lifnaðarhætti í Reykjavík og á sumrin má þar sjá húsdýr og mannlíf fyrri tíma.Í safninu er boðið upp á fjölda sýninga og viðburða, þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil. Þar má nefna handverksdaga, fornbílasýningu, jólasýningu og margt fleira. Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi í Árbæjarsafni.
Árbær var rótgróin bújörð allt fram á 20. öld og hafði lengi verið áningarstaður fólks á leið til og frá Reykjavík. Býlið fór í eyði undir 1950. Árið 1957 samþykkti bæjarráð Reykjavíkur að þar skyldi gamli bærinn endurbyggður og komið upp safni gamalla húsa, sem hefðu menningarsögulegt gildi. Safnið var opnað strax þá um haustið.Fyrsta flutningshúsið, Smiðshús, var flutt þangað árið 1960. Ári síðar kom Dillonshús. Flest húsin hafa verið flutt úr miðbæ Reykjavíkur.
