Café Haiti
Geirsgata 7b, Reykjavík
Eins og nafnið gefur til kynna koma kaffibaunirnar frá Haítí en þær eru brenndar á staðnum til að viðhalda ferskleika.
Fyrir utan mikinn og góðan kaffiilm er það hlýlegt andrúmsloft sem tekur á móti manni þegar gengið er inn á Café Haiti í verbúðunum við Gömlu höfnina í Reykjavík.
Það var árið 2010 sem að Elda Thorisson-Faurelien ásamt manni sínum Methúsalem Þórissyni flutti sig um set með kaffihúsið úr agnarlitlu húsnæði að Tryggvagötu 16 í verbúðirnar á hafnarbakkanum við Suðurbugtina þar sem er að myndast spennandi þyrping veitingahúsa, gallería, kaffihúsa og annara þjónustufyrirtækja.