Kaldi Bar
Laugavegur 20b, Reykjavík
Við á Kalda Bar erum stolt af því að bjóða fram á eitt besta bjór úrval landsins og er flaggskip staðarins dælan okkar sem býður fram á 8 mismunandi tegundir af bjór í hvert sinn.
Auk þess leggjum við mikinn metnað í fjölbreytni í bjórúrvali og skiptum því reglulega um tegundir á dælunni og þar á móti bjóðum við frábært úrval af flöskubjór.
Bjórinn er kannski flaggskipstaðarins en þar á móti reynum við að státa okkur af frábæru úrvali af sterku víni þar sem við leggjum metnað í að bjóða fram það besta sem er í boði í þeim efnum.
Það sama má segja um léttvíns úrval okkar þar sem fólk getur valið úr fjölda tegunda eða gætt sér á glasi af sérvöldu víni húsins.
