Kol Restaurant

Skólavörðustígur 40, Reykjavík

: 517 7474

: 517 7474

Veitingastaðurinn Kol opnaði í febrúar 2014 og hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur frá fyrsta degi. Að Kol standa reynslumiklir menn í veitingarbransanum. 

Eldhúsinu á Kol stjórna Kári Þorsteinsson og Einar Hjaltason. Þeir hafa báðir unnið á mörgum vinsælustu og flottustu veitingastöðum Evrópu.

Barnum og salnum á Kol stjórnar Gunnar Rafn Heiðarsson en hann hefur verið veitingarstjóri á mörgum flottustu veitingahúsum Reykjavíkur.

Eldhúsið á Kol leggur mikið uppúr „comfort“ mat með klassísku twisti. Á matseðlinum kennir ýmissa grasa, á boðstólnum er gott úrval fjölbreyttra forrétta ásamt ýmis konar fingurfæðisrétta. Í aðalrétt eru hinar ýmsu steikur kolagrillaðar í kolaofni og einnig er boðið upp á úrval fiskrétta og ekki má gleyma eftirréttunum.

 

Á barnum á Kol er mikið lagt upp úr hágæða kokteilum. Við forðumst það að nota hráefni sem inniheldur gervi bragð- og litarefni. Við lögum mikið af ýmis konar sírópum og infuserum okkar eigin útgáfur af margs konar áfengi og bjóðum einungis upp á hágæða vörur á barnum.

Barinn á Kol er leiðandi ásamt nokkrum öðrum börum í bænum í rísandi kokteilsenu Íslands. 

0.0

Meðaleinkunn

Núverandi staðsetning